Viðburðir í Minni-Vogum
Dagskrá 2011-2012
Haustmarkaður Hlöðunnar
Að nýju er blásið til sveitamarkaðar í hlöðunni við Egilsgötu 8. Að þessu sinni verður markaðurinn haldinn laugardaginn 17. september frá kl. 12-18 en þá munu íbúar Voga og Vatnsleysustrandar bjóða grönnum sínum að njóta haustuppskerunnar með sér.
Meðal þess sem verður á boðstólum er ýmislegt matarkyns svo sem sultur, flatkökur og nýupptekið grænmeti. Einnig verða til sölu húfur og treflar ásamt öðru handverki.
Á markaðnum verður keppt um bragðbestu sultuna eins og í fyrra þegar Kolbrún Dagbjört Sigurðardóttir bar sigur úr býtum fyrir ljúffengt rifsberjahlaup með vanillu. Gestir eru hvattir til þess að skrá sig í keppnina á netfangið sveitamarkadur@hladan.org
UNDIR NIÐRI
HLAÐAN KYNNIR:
UNDIR NIÐRI
Hljóðinnsetning / griðastaður
e. Graham Keegan & Kira Kira
Opnun 24. júlí kl: 17:00
Listamennirnir Graham Keegan og Kira Kira hafa byggt musteri úr ull inn í Hlöðunni -sýningarrými í Vogum á Vatnsleysuströnd. Opnun þess verður fagnað næstkomandi sunnudag klukkan 17:00 með frumflutningi nýrrar tónsmíðar Kiru Kiru. Sérstakur gestur hennar er Pétur Hallgrímsson sem leikur á kjöltustálgítar.
Í tónsmíðinni byggir Kira á orgelmöntru. "Mig langaði til þess að búa til músíkalskt ástand áþekkt því sem mér finnst gott að hafa hjá mér þegar ég hugleiði, eitthvað sem greiðir fyrir samtalinu við innimanninn og skapar andrúmsloft sem kemur kyrrð á hugann."
Á opnunni leikur Kira á orgel og Pétur Hallgrímsson á kjöltustálgítar en á upptökunni sem ómar í musterinu á meðan á sýningu stendur leikur einnig trompetleikarinn Eiríkur Orri Ólafsson.
Musterið bjó Graham til úr íslenskri ull. Hann langaði til þess að búa til eins konar vé, griðastað fyrir andann. "The space within is soft and serene, a spiritual cocoon."
Opnun sunnudaginn 24. júlí kl. 17:00, stundvíslega. Sýningin verður opin til og með 13. ágúst.
Sænski myndlistarmaðurinn Ellakajsa Nordström sýnir í Hlöðunni
Sænski myndlistarmaðurinn Ellakajsa Nordström sem nú dvelur í gestavinnustofu Sveitarfélagsins Voga sýnir í Hlöðunni fimmtudaginn 10. febrúar kl. 19:00
Ellakajsa hefur í verkum sínum kannað ryk og aðrar leifar sem falla til frá degi til dags og er ýmist sópað í burtu eða hent.
Hvað gerist ef við skoðum vandlega þessa smáhluti sem við fleygjum í ruslið? Hvaða sögur hafa þeir að geyma, skipta þeir yfirhöfuð máli?
Með því að safna rusli með þeim sem sjá um þrif í Sveitarfélaginu Vogum gerir Ellakajsa tilraun til að skapa mynd af þorpinu, um leið og hún skapar dvöl sinni og upplifun af þorpinu merkingu.
Ellakajsa veitir hinu smáa athygli í verkinu sem sýnt verður í Hlöðunni. Hún dregur fram þessi smáatriði hversdagslífsins, sem við sjaldnast veitum athygli, og sýnir að þegar nánar er að gætt hafa þau að geyma bæði fegurð og ljóðrænu.
Um leið segir hið smáa okkur heilmikið um okkur sjálf, það sem annars týnist eða gleymist þegar við lítum á lífið frá breiðara sjónarhorni.
Sýningin hefst í Hlöðunni við Egilsgötu 8 190 Vogum kl. 19:00 og eru allir velkomnir.
Nánari upplýsingar um verk Ellukajsu Nordström má finna á vefsíðu hennar http://ellakajsanordstrom.blogspot.com
Jólalegur sveitamarkaður laugardaginn 4. desember
Laugardaginn 4. desember verður haldinn annar sveitamarkaður Hlöðunnar. Að þessu sinni verður yfirbragð markaðarins jólalegt, boðið verður upp á jólalegar sultur, smákökur, heimagerða kransa og ýmislegt fleira.
Áherslan er eins og fyrr á heimagerða matvöru og handverk.
Markaðurinn hefst kl. 12 á hádegi og stendur fram eftir degi. Heitt súkkulaði verður til sölu á sanngjörnu verði og sannkallaður sveitamarkaðs andi.
LITLA GJÖRNINGAHÁTÍÐIN 2010
Litla gjörningahátíðin í Vogum opnar föstudaginn 15. október næstkomandi með flutningi verksins Bíltúr jeppi sem þeir Áki Ásgeirsson, Halldór Arnar Úlfarsson og Páll Ivan Pálsson flytja.
Þar á undan munu skáld úr hópi Nýhil flytja ljóðagjörninga víðs vegar um bæinn.
Laugardaginn 16. október flytur aðalgestur hátíðarinnar Essi Kausalainen verk sitt kl. 15:00 í Hlöðunni við Egilsgötu 8.
Essi Kausalainen er meðal þekktustu gjörningalistamanna yngri kynslóðarinnar í Finnlandi og hefur tekið þátt í sýningum og hátíðum víða um heim. Fyrr á árinu hélt hún einkasýninguna Performance Portraits í Muu gallery í Helsinki.
Vel lukkaður sveitamarkaður
Besta sultan skrýtnasta kartaflan
Skráið ykkur í keppnina um bragðbestu sultuna og skrýtnustu kartöfluna!
Tekið er við skráningu í S. 4227988 og á netfangið listahladan@gmail.com
Keppnin fer fram á sveitamarkaðnum nk. laugardag þann 11. september
Vegleg bókaverðlaun eru í boði fyrir vinningshafa!
Sveitamarkaður Hlöðunnar
Sveitamarkaður Hlöðunnar verður haldinn í fyrsta sinn laugardaginn 11. september frá kl. 12-16 en þá bjóða íbúar Voga og Vatnsleysustrandar grönnum sínum að njóta haustuppskerunnar með sér. Meðal þess sem verður á boðstólum er ýmislegt matarkyns svo sem sultur, chutney, heimagert marmelaði,krydd og nýuppteknar kartöflur. Einnig verða til sölu húfur, treflar, pelapeysur ásamt öðru handverki.
Á markaðnum verður keppt um bragðbestu sultuna og skrýtnustu kartöfluna og eru gestir hvattir til þess að skrá sig í keppnina á netfangið listahladanhjágmail.com
Svokallað “skiptiborð” verður á markaðnum þar sem hægt verður að skiptast á varningi, grænmeti, sultutaui, handverki eða lopasokkum. Boðið verður upp á kaffi og heitt súkkulaði á sanngjörnu verði.
Landnámsgeitur- og hænur koma í heimsókn og hver veit nema nikkur verði þandar í tilefni dagsins.
Tónleikar í Hlöðunni
Laugardaginn 14. ágúst síðastliðinn léku systurnar Adda og Sunna Ingólfsdætur frumsaminn lög Öddu og nokkrar ábreiður í hlöðunni. Tónleikarnir voru haldnir í tilefni bæjarhátíðar Voga -Fjölskyldudagsins.
Meðfylgjandi eru myndir frá viðburðnum.
Styttist í sveitamarkað Hlöðunnar
Það styttist óðum í sveitamarkað Hlöðunnar sem verður haldinn laugardaginn 11. september.
Nánari tímasetningar ásamt því sem boðið verður upp á munu birtast fljótlega.
Sveitamarkaður Hlöðunnar 2010
Þegar haustuppskeran er komin í hús og allir búnir að sulta og safta mun Hlaðan bjóða íbúum Voga, Vatnsleysustrandar og nágrennis að selja afurðir sínar á sérstökum sveitamarkaði Hlöðunnar. Þátttakendum verður einnig gefinn kostur á að skipta á vörum við aðra. Svo er aldrei að vita nema keppt verði í bestu sultunni og fallegustu kartöflunni!
Nú er því um að gera að safna krukkum, byrja að prjóna eða huga að því sem gaman væri að gefa öðrum kost á að njóta –möguleikarnir eru óþrjótandi!
Skráning hefst 1. júlí á netfangid listahladan@gmail.com eða í S. 4227988
Frekari upplýsingar eru einnig gefnar í gegnum sama netfang og símanúmar.
Njótið sumarsins!
Halló sumar, bless bless vetur!
Lokaviðburður vetrardagskrár Hlöðunnar verður á morgun föstudaginn 4. júní kl. 19.
Fram koma:
Kolbeinn Hugi Höskuldsson sem sýnir myndbandsverk, Kolli Kvlt og Mundi Vondi fatahönnuður fremja gjörning
Hljómsveitin DLX Attacks leikur tónlist.
Boðið verður upp á hressingu m.a. grillaðan rababara og sykurpúða en Bakkus Postulanna verður opin á meðan á dagskránni stendur.
Hlaðan opnar kl. 19 ogh dagskráin stendur til kl. 21:30
Frítt inn og allir velkomnir!
Sjáumst í sumarskapi!
Dagskráin
Vetrardagskrá Hlöðunnar hefur breytst örlítið en í vor verður ýmislegt á döfinni sem kynnt verður betur síðar. Það sem er framundan er meðal annars undirbúningur sveitamarkaðar sem Hlaðan hyggst halda í haust. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt hafi endilega samband á netfangið listahladan@gmail.com.
Hlaðan vill einnig benda þeim sem hafa áhuga á því að halda sýningu, tónleika eða annað að hafa samband.
Ljóðræn myndbandslist í Hlöðunni
Heimsókn Kino klúbbsins í Hlöðuna var vel heppnuð, meðal þess sem var sýnt var ljóðrænt myndbandsverk eftir hollenskan listamann Francien Van Everdingen. Hlaðan hefur farið þess á leit við Rebeccu Moran hjá Kino klúbbnum að endurtaka leikinn. Eins og sjá má á ljósmyndinni eru sýningargræjurnar ekki af verri endanum eða 16 mm sýningarvél með tilheyrandi hljóði og andrúmslofti liðinna tíma. Fylgist með þegar næsta samstarfsverkefni Hlöðunnar og Kino klúbbsins fer af stað.
Kino klúbburinn heimsækir Hlöðuna
Fimmtudagskvöldið 11. febrúar kl. 20 verða sýnd kvikmyndaverk eftir tvo erlenda listamenn þær Deborah Stratman frá Bandaríkjunum og Francien Van Everdingen frá Hollandi. Sýningin er haldin í samvinnu við Kino klúbbinn sem starfræktur hefur verið síðan í ágúst í fyrra en það er Rebecca Moran sem hefur haft veg og vanda að sýningunum. Kvikmyndirnar sem sýndar verða eru þrjár. From Hetty to Nancy eftir Stratman og tvær stuttmyndir, Kitchen Piece og Wall of Sound Flowers, eftir Van Everdingen. Aðgangur er ókeypis og öllum opin.
Jólaljóð að baki og kvikmyndasýning framundan
Fríður flokkur skálda úr röðum nýhil fyllti stofuna í jólalegri stemningu föstudaginn 18. desember síðastliðinn. Þeir sem fluttu ljóð sín voru Arngrímur Vídalín, Jón Bjarki, Jón Loðmfjörð og Kári Páll Óskarsson.
Skáldin létu vel af dvöl sinni í Vogum og vonandi verða þeir gestir Hlöðunnar á ný.
Á næstu vikum verður sýnd stutt kvikmynd eftir Deborah Stratman en sýningin verður í samstarfi við Rebeccu Moran sem hefur veg og vanda að Kino klúbbnum http://www.facebook.com/pages/Reykjavik-Iceland/Kino-Klubbur/137021180428
Nánari upplýsingar um viðburðinn verða sendar út von bráðar.
Hlaðan óskar Suðurnesjamönnum öllum, gestum sínum og þeim listamönnum sem troðið hafa upp síðan Hlaðan hóf störf vorið 2008 gleðilegs nýs árs og farsældar í framtíðinni.
Ljóð jóðl: Upplestur á vegum Hlöðunnar 18.12. kl. 20:00
Föstudagskvöldið 18. desember munu ljóðskáld frá höfundaforlaginu Nýhil troða upp á vegum menningarverkefnisins Hlöðunnar að Egilsgötu 8 Vogum.
Meðal þeirra sem lesa munu upp úr nýútkomnum verkum sínum eru þeir Arngímur Vídalín sem sendi nýlega frá sér ljóðabókina Úr skilvindu draumanna og Kári Páll Óskarsson.
Nýhil er meðal annars þekkt fyrir Alþjóðlega ljóðahátíð Nýhils sem haldin hefur verið frá árinu 2005 og lifandi flutning sem á oft meira skylt við gjörningalist en hefðbundinn upplestur.
Allir eru velkomnir og boðið verður upp á jólalegar veitingar.
Hlaðan hvetur Suðurnesjamenn, ljóðaunnendur og þá sem hafa gaman af því að kynnast nýjum og spennandi skáldum að mæta.
Húsið opnar kl. 20:00 föstudaginn 18. desember í Minni-Vogum að Egilsgötu 8 Vogum.
Ljóðabókaflóðið er hafið
Frumraun Pascal Pinon
Hljómsveitin Pascal Pinon gaf út fyrstu breiðskífu sína fyrir skömmu en sveitin tók upp í Minni-Vogum. Hlaðan óskar Pascal Pinon til lukku með frumraunina og óskar þeim alls hins besta á tónlistarbrautinni.
Vetrardagskráin væntanleg
Tónleikar á föstudagskvöld!
Hlaðan minnir á tónleika Pascal Pinon annaðkvöld, föstudaginn 28. ágúst kl. 20:00
Aðgangur er ókeypis og að venju er boðið upp á heitt súkkulaði![]()
Pascal Pinon leikur tónlist í Hlöðunni
Hljómsveitin Pascal Pinon dvaldi nýverið í Hlöðunni og vann að fyrstu breiðskífu sinni.
Föstudaginn 28. ágúst næstkomandi mun Pascal Pinon troða upp á stofutónleikum Hlöðunnar að Egilsgötu 8 Vogum.
Pascal Pinon hefur á stuttum starfstíma sínum eignast marga aðdáendur en hljómsveitin tók þátt í Músíktilraunum fyrr á þessu ári og vakti mikla athygli. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér verk sveitarinnar er bent á myspacesíðu hennar http://www.myspace.com/pascalpinon
Vonumst til þess að sjá sem flesta föstudaginn 28. ágúst næstkomandi.
Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 20:00 og sem fyrr er boðið upp á ólgandi heitt súkkulaði.
Ungir og upprennandi hreyfi- og kvikmyndagerðarmenn á Suðurnesjum
Sumarnámskeiðinu Kvik og leik lauk síðastliðinn föstudag en um tuttugu börn og unglingar frá Suðurnesjum tóku þátt og af afrakstri námskeiðsins að dæma má vænta þess að hér vaxi nú upp mikið hæfileikafólk á sviði kvik- og hreyfimyndagerðar.
Meðal þess sem nemendur á námskeiðinu unnu að var gerð tónlistarmyndbands með aðstoð græns bakgrunns, leirmyndagerð og hreyfimyndagerð. Kennarar á námskeiðinu voru þau Guðný Rúnarsdóttir og Markús Bjarnason en meðal gestakennara voru þær Þórey Mjallhvít Heiðar- og Ómarsdóttir teiknari og hreyfimyndagerðarmaður og Rebecca Moran myndbandslistamaður.
Námskeiðið var haldið í samvinnu við sveitarfélagið Voga og styrkt af Menningarráði Suðurnesja. Hér má sjá brot af afrakstri námskeiðsins http://www.youtube.com/watch?v=qTlzBsROOpU&feature=channelDagskrá Kvik og leik
Mæting er klukkan 9, mánudaginn 22. júní við Egilsgötu 8 í Vogum. Allir dagarnir byrja þar.
Nemendur eru beðnir um að koma með útiföt eftir veðri og nesti fyrir allan daginn. Við munum bjóða upp á djús og svo ávexti seinni part dags. Hægt er að geyma nesti í ísskápnum og í eldhúsinu er m.a. samlokugrill.
Námskeiðsgjald er sem fyrr segir 10.000 krónur og
greiðist áður en námskeiðið hefst,
inná reikning:
kt: 1211785599 (Nafn: Bjarni Þórisson)
Ath! Vinsamlegast setjið nafn barns sem skýringu.
-------------------------------------------------------------------------------------------------
Dagskrá Kvik og Leik í stórum dráttum. (alla daga verður farið í leiki í hádeginu)
Mánudagur (9-15) - Kynning, tilraunir með kvikmyndaformið. Leikir.
Þriðjudagur (9-15) - Gerum tónlistarmyndband með hjálp græns bakgrunns (green screen).
Miðvikudagur (9-15) - Gestakennari kemur, hreyfimyndagerð.
Fimmtudagur (9-15) - Verkefni kláruð, vettvangsferð, leikin atriði.
Föstudagur (9-15) - Klárum verkefnin, undirbúum sýningu, grillum pylsur í hádeginu. , sýning kl: 14:00 í Hlöðunni, Egilsgötu 8, Vogunum. ( Vinir og vandamenn velkomnir )
---------------------------------------------------------------------------
Kvik og leik hefst á mánudag
Sumarnámskeið Hlöðunnar, Kvik og leik hefst á mánudaginn þann 22. júní.
Fullt er á fyrsta námskeiðið en enn eru laus pláss á námskeiðið sem hefst 29. júní. Aðeins tvö pláss eru laus á námskeiðið sem hefst 6.júlí.
Fyrir helgi verða nánari upplýsingar sendar til þeirra sem skráðir eru á námskeiðið en upplýsingarnar verður einnig hægt að nálgast hér á heimasíðu Hlöðunnar.
Fylgist með á hladan.org
Kvik og leik : breytingar
Þær breytingar hafa orðið að í stað þess að byrja þann 15. maí verður fyrsta námskeiðið frá 22.-26. júní. Fullt er á það námskeið en enn er laust á námskeiðin sem verða haldin 29. júní -3. júlí og 6.-10. júlí.
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á námskeiðið!
Skráning á Kvik og leik í fullum gangi
Hladan tekur nú á móti skráningu á sumarnámskeiðið Kvik og leik.
Vegna fyrirspurna þá vill Hladan koma því á framfæri að áhugasömum krökkum á níunda ári (fædd 2000) er velkomið að taka þátt.
Sköpunargleði og fjör á Kvik og leik í sumar!![]()
S.L.Á.T.U.R í Hlöðunni
Raflost í Hlöðunni
Menningarverkefnið Hlaðan ásamt raflistahátíðinni Raflost býður íbúum í Vogum og nærsveitungum til rafmagnaðrar dagskrár laugardaginn 9. maí næstkomandi.
Á vegum raflistahátíðarinnar Raflosts mun Slátur:Magn flytja gjörning í Hlöðunni Egilsgötu 8 Vogum. Gjörningurinn hefst kl. 12:00.
Raflost er raftónlistarhátíð og fer fram dagana 5. til 9. maí. Hátíðin er nú haldin í þriðja sinn. Meðal þátttakenda í ár eru Tomi Knuutila, Teijo Pellinen, Chris Hales, Margrét E. Ólafsdóttir, Þórhallur Magnússon og Davíð Brynjar Franzson.
Nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á www.raflost.is
Vorverk Hlöðunnar
Hlaðan hugar nú að vorverkum.
Undirbúningur sumarnámskeiðsins Kvik og leik stendur nú sem hæst, allar vonir standa til að skráning hefjist fljótlega eftir páska.
Dagskráin í maí verður kynnt von bráðar.
Þeir sem hafa áhuga á að fá frekari upplýsingar um dagskrána eða heimsækja gestavinnustofuna hafi samband við okkur á listahladan@gmail.com eða í S. 4227988
Hlaðan tekur þátt í Safnahelgi á Suðurnesjum
Menningarverkefnið Hlaðan tekur þátt í Safnahelgi á Suðurnesjum sem haldin verður dagana 14. -15. mars.
Dagskráin verður kynnt síðar og lofar Hlaðan góðri stemningu í Vogunum þann 14. mars næstkomandi en sveitarfélagið Vogar mun eins og önnur sveitarfélög á Suðurnesjum bjóða upp á vandaða og skemmtilega dagskrá.
Hlaðan hvetur Suðurnesjabúa og nágranna til þess að gera sér dagamun og heimsækja þau fjölmörgu söfn sem eru á svæðinu og njóta þess sem boðið verður upp á.
Hlaðan tekur til starfa á nýju ári
Hlaðan hefur tekið aftur til starfa. Í undirbúningi er námskeiðið Kvik og Leik sem ætlað er börnum og unglingum á aldrinum 9-12 ára og 13-16 ára. Námskeiðið verður haldið í sumar og skráning hefst í vor.
Markús Bjarnason mun halda tónleika í febrúarmánuði en hann heimsækir gestavinnustofu Hlöðunnar í annað sinn nú í janúar. Markús hóf nýverið upptökur á sólóplötu sinni en hann hefur starfað með ýmsum hljómsveitum meðal annars hljómsveitinni Skátum.
Hlaðan hefur ýmislegt á prjónunum á nýju ári og mun gera sitt til þess að gleðja íbúa hér á Reykjanesi ásamt því að auka veg lista og menningar í Vogum.
Upplestur í stofunni
Jólabókaflóðið hefur skilað mörgum nýjum og spennandi bókum á fjörur.
17. desember næstkomandi verður boðið upp á lestur úr nokkrum þeirra verka sem koma út fyrir jólin
Jólatónleikar Hlöðunnar
Föstudagskvöldið 12. desember munu stelpurnar í Wonderbrass leika jólalög í stofunni í Minni-Vogum.
Boðið verður upp á piparkökur og góða jólastemmningu.
Nú er lag að komast í sannkallað hátíðarskap, hlýða á góða tónlist og koma saman.
Aðgangur er ókeypis.
Upplyfting í Minni-Vogum
Föstudaginn 5. desember mun sönghópurinn Uppsigling halda uppi fjörinu með söng í Minni-Vogum.
Allir eru velkomnir og heitt verður á könnunni.
Gleðin hefst kl. 20:00
Heimildamyndasýning Fríur Fantasiur
Fimmtudaginn 13. nóvember næstkomandi verður heimildamyndin Fríur Fantasiur eftir Guðnýju Rúnarsdóttur og Markús Bjarnason sýnd í Minni-Vogum. Myndin var tekin upp í Færeyjum árið 2006 og þar er skyggnst inn í líf tveggja kvenna sem eiga sér ansi skemmtileg áhugamál.
Sem fyrr er aðgangur ókeypis og heitt á könnunni. Myndin hentar öllum aldurshópum.
Sýningin hefst kl. 20:00
Viðburðurinn er styrktur af Menningarráði Suðurnesja líkt og allir viðburðir sem haldnir eru á vegum Menningarverkefnisins Hlöðunnar, Minni-Vogum.